Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Skráning er hafin í borgaralega fermingarfræðslu

Skráning er hafin í borgaralega fermingarfræðslu

Í dag, þann 1. september, hófst skráning í borgaralega fermingarfræðslu. Skráning er í fullum gangi og nú þegar er fullt á eitt námskeið - Fermingarbúðir á Úlfljótsvatni 6. - 8. nóvember.

 

Við hvetjum foreldra og forsjáraðila þeirra barna sem vilja taka þátt í borgaralegri fermingarfræðslu að gera það fyrr heldur en síðar, sérstaklega ef skrá á fermingarbörn á námskeið með vinum.

 

Einnig minnum við á að opið er fyrir skráningar í hópathafnir. Á næstu vikum mun opna fyrir einkafermingar fyrir árið 2027.

 

Ef einhverjar spurningar vakna heyrið endilega í okkur á ferming@sidmennt.is

 

Við hlökkum til fermingartímabilsins með ykkur!

Til baka í yfirlit