Efast á kránni heldur áfram!
Þriðjudaginn 29. september mun Finnur Ulf Dellsén, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, fjalla um þekkingarfræðilegan bjarnargreiða loftslagsafneitara.
Á undanförnum árum hafa ýmsir aðilar, þar á meðal fræðimenn af ýmsu tagi, reynt að færa margskonar rök gegn því að loftslagsbreytingar séu að mestu eða miklu leyti af mannavöldum. Fullyrða má að allar slíkar tilraunir hafi mistekist hrapallega. Hvaða afleiðingar ætti þetta að hafa fyrir umræðuna um loftslagsbreytingar af mannavöldum? Og hvaða þýðingu hefur það almennt fyrir trúverðugleika tiltekinnar vísindakenningar að margar misheppnaðar tilraunir hafi verið gerðar til að hrekja hana?
Í þessu erindi færir Finnur rök fyrir því að misheppnaðar hrakningatilraunir veiti okkur oft aukna ástæðu til að trúa kenningunni – umfram þau hefðbundnu vísindalegu rök sem eru fyrir henni – og að þetta eigi sérstaklega við um þá „kenningu“ (eða staðreynd) að loftslagsbreytingar eru að miklu eða mestu leyti af mannavöldum. Í þessum skilningi hefur loftslagsafneiturum tekist að gera sjálfum sér og skoðanasystkinum sínum þekkingarfræðilegan bjarnargreiða.
Rannsóknir Finns falla undir vísindaheimspeki og þekkingarfræði, en hann hefur einnig fengist umtalsvert við heimspekilega rökfræði sem og önnur svið heimspekinnar, svo sem siðspeki og heimspekisögu.
Viðburðurinn hefst klukkan 17:00 í Húsi Máls og Menningar á Laugavegi.
Öll velkomin og vonumst til að sjá sem flest.
Happy hour á barnum 17-18.
Staðurinn er aðgengilegur fyrir hjólastóla!