Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Ljóðasamkeppni Siðmenntar

Ljóðasamkeppni Siðmenntar

Þann 21. júní næstkomandi eru sumarsólstöður og jafnframt alþjóðadagur húmanista. Af því tilefni stendur Siðmennt fyrir sólstöðuhugvekju á Rás 1 þar sem þemað er frelsi.

Í tilefni dagsins efnir Siðmennt til ljóðasamkeppni þar sem skáldum gefst tækifæri á að senda inn ljóð sem fjalla á einhvern hátt um frelsi

Forsendur og leiðbeiningar um innsendingar

  • Ljóðið má ekki hafa verið birt opinberlega á prenti eða lesið upp á ljósvakamiðlum, þar með talið á samfélagsmiðlum, í útvarpi, sjónvarpi eða öðrum sambærilegum miðlum.
  • Ljóðum skal skilað með tölvupósti á sidmennt@sidmennt.is.
  • Í tölvupóstinum skal koma fram nafn höfundar, netfang, dulnefni og símanúmer.
  • Ljóðinu skal skilað sem viðhengi í PDF-skjali. Í skjalinu sjálfu skulu einungis koma fram ljóðið og dulnefni höfundar.
  • Ljóðið skal vera á íslensku.
  • Skrifstofa Siðmenntar tekur við innsendingum og afhendir dómnefnd eingöngu PDF-skjalið þar sem dulnefni kemur fram.
  • Þegar niðurstaða liggur fyrir mun dómnefnd einungis hafa samband við sigurvegara. Öllum öðrum gögnum verður eytt.
  • Valin verða 2–3 sigurljóð.
  • Frestur til að senda inn er kl 23:59 sunnudaginn 24. maí 2026.

 

Verðlaun og upptökur

Hver sigurvegari hlýtur 30.000 krónur í verðlaunafé og mun lesa eigið ljóð í þætti Siðmenntar þann 21. júní.

Athygli er vakin á því að upptökur fara fram fyrstu vikuna í júní. Ef ljóðskáld getur af einhverjum ástæðum ekki lesið ljóð sitt sjálft verður hægt að finna annan lesanda í samráði við viðkomandi.

Til baka í yfirlit