Hoppað í hnapphelduna
Í kringum sumarsólstöður býður Siðmennt pörum að ganga í hjónaband í snarpri, merkingarþrunginni, hátíðlegri og síðast en ekki síst lögformlegri athöfn.
Dagsetning fyrir 2027 verður auglýst síðar.
Dagsetning fyrir 2027 verður auglýst síðar.
Verð
Frítt fyrir öll.
Annað
Athafnirnar taka um 20-30 mínútur hver.
Boðið verður upp á lifandi tónlist og fallegt umhverfi.
Gestir velkomnir, hámark 18 (að hjónaefnum undanskildum).
Stundvísi er nauðsynleg.
Fyrirspurnir sendist á athafnir@sidmennt.is
Til að hjónavígsla hafi lagalegt gildi þurfa hjónaefni að fá útgefið könnunarvottorð.
*Hjónaefni sem eru með íslenska kennitölu, rafræn skilríki og með lögheimili á Íslandi geta sótt um tilskilin vottorð í gegnum https://island.is/um-hjonaband.
*Hjónaefni sem ekki eru fædd á Íslandi og/eða eru ekki með lögheimili hér á landi geta fyllt út þetta eyðublað og sótt um tilskilin vottorð hjá Sýslumannsembættinu í Vestmannaeyjum á netfangið gifting@syslumenn.is (s. 458-2900).
*Könnunarvottorð má ekki vera eldra en 30 daga á vígsludegi.