Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Laust starf: Verkefnastjóri - þróun veraldlegrar sálgæslu

Laust starf: Verkefnastjóri - þróun veraldlegrar sálgæslu

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, auglýsir eftir öflugum og sjálfstæðum einstaklingi til að sjá um þarfagreiningu og fýsileikakönnun vegna mögulegrar uppbyggingar veraldlegrar sálgæslu á vegum félagsins. Veraldleg sálgæsla felur í sér stuðning og samtal um lífsins stóru spurningar, erfiðleika og tilvist án trúarlegra forsendna. 

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi verkefni sem felur í sér rannsóknar- og greiningarvinnu, samráð við ólíka aðila og mótun tillagna um framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar. 

Um tímabundið verktakaverkefni er að ræða sem hefst í síðasta lagi í janúar 2027. Lokaskil eru áætluð 28. febrúar 2027, auk kynningar á niðurstöðum verkefnisins á aðalfundi félagsins 13. mars 2027. Gera má ráð fyrir að umfang verkefnisins samsvari um það bil fullu starfi í tvo mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með verkefninu og samskipti við skrifstofu og aðra hagaðila.

  • Kortlagning á núverandi þjónustu og þörf fyrir veraldlega sálgæslu og tilvistarráðgjöf á Íslandi.

  • Samtal við mögulega samstarfsaðila, svo sem heilbrigðisstofnanir, fangelsi, lögreglu, hjúkrunarheimili og aðrar viðeigandi stofnanir.

  • Könnun á erlendum fyrirmyndum, faglegum kröfum og mögulegum fjármögnunarleiðum.

  • Mótun tillagna að mögulegu þjónustufyrirkomulagi, þar á meðal afmörkuðu tilraunaverkefni.

  • Gerð greinargerðar með niðurstöðum, kostnaðarmati og tillögum um næstu skref til umfjöllunar og ákvörðunar hjá stjórn Siðmenntar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og reynsla sem nýtist við rannsóknir, greiningarvinnu og verkefnastjórnun.

  • Mjög góð færni í að greina upplýsingar, draga ályktanir og setja fram skýrar og rökstuddar tillögur.

  • Framúrskarandi íslenskukunnátta og hæfni til að miðla flóknu efni á skýran og aðgengilegan hátt, bæði skriflega og munnlega.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfileikar og frumkvæði.

  • Góð samskiptahæfni og geta til að eiga árangursríkt samstarf við fjölbreyttan hóp fólks og stofnana. 

 

Starfsfyrirkomulag og umsóknarferli 

Um er að ræða starf án staðsetningar, sem felur í sér sveigjanleika við skipulag verkefnisins.

Heildargreiðsla fyrir verkefnið er 2.300.000 kr., að meðtöldum virðisaukaskatti ef við á. Fjárhæðin er endanleg og tekur til alls kostnaðar vegna verkefnisins.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga sínum á verkefninu og þeirri þekkingu og reynslu sem nýtist við framkvæmd þess. Guðrún Þóra Arnardóttir, framkvæmdastjóri Siðmenntar, tekur við fyrirspurnum og umsóknum á netfanginu gudrunthora@sidmennt.

Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember

Um Siðmennt

Siðmennt er lífsskoðunarfélag siðrænna húmanista á Íslandi. Félagið starfar á grundvelli mannréttinda, lýðræðis, jafnréttis og virðingar fyrir mannlegri reisn.

Húmanismi er veraldleg lífsskoðun sem byggir á þeirri sannfæringu að manneskjan beri sjálf ábyrgð á lífi sínu, siðferðilegum ákvörðunum og mótun samfélagsins. Í stað trúarlegra eða yfirnáttúrulegra forsendna leggur húmanismi áherslu á þekkingu, gagnrýna hugsun, samræðu og samkennd. 

Hlutverk Siðmenntar er að efla húmanísk gildi í íslensku samfélagi, standa vörð um lífsskoðunarfrelsi fólks og vera málsvari veraldlegs og réttláts lýðræðissamfélags. Félagið vill skapa vettvang þar sem einstaklingar geta leitað lífsfyllingar, merkingar og siðrænnar leiðsagnar án trúarlegra forsendna, jafnt í daglegu lífi sem á mikilvægum tímamótum á lífsleiðinni. 

Til baka í yfirlit