Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Mikilvægar upplýsingar varðandi fermingarathöfnina

Kæra fermingarbarn, foreldri eða forráðamaður,

Nú eru línur varðandi fermingarathöfnina farnar að skýrast og því tímabært að láta ykkur vita um gang mála.


Undirbúningur athafnarinnar
Nokkur fermingarbörn eru nú að æfa dagskrá með tónlistarflutningi og upplestri. Tveir ræðumenn, þeir Hörður Torfason og Erpur Eyvindarson, flytja stutt ávörp. Fermingarstjóri verður Sigurður Skúlason, leikari.

Fermingarathöfnin
Athöfnin fer fram sunnudaginn 4. apríl 2004, kl. 11:00 í Háskólabíói. Fermingarbörn mæti stundvíslega kl. 10:30. Athöfnin mun væntanlega standa yfir í um klukkustund. Dagskráin lofar góðu, en þar skiptast á atriði í umsjá fermingarbarna, tónlist og stutt ávörp. Við athöfnina munu fermingarbörn fá afhent skjal sem staðfestir þátttöku þeirra í undangengnu fræðslunámskeiði.
Að athöfn lokinni fer fram hópmyndataka sem tekur væntanlega um 20 mínútur, sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

Í ár verða fermingarbörnin 85, sem er stór hópur. Þrátt fyrir að Háskólabíó sé rúmgott hús eru ekki sæti nema fyrir um það bil 10-11 aðstandendur á fermingarbarn og biðjum við ykkur að taka tillit til þess.

Gestir rísa úr sætum þegar fermingarbörn ganga í salinn.
Vinsamlegast slökkvið á farsímum meðan á athöfninni stendur.

Æfing
Æfing fyrir fermingarathöfnina verður í Háskólabíói laugardaginn 3. apríl 2004 kl.10:00. Öll fermingarbörn verða að mæta.
Allur hópurinn æfir inngöngu í sal, uppgöngu á svið, móttöku skírteina, útgöngu af sviði og uppstillingu fyrir myndatöku. Að því loknu munu þau fermingarbörn sem verða með atriði í athöfninni æfa sinn þátt. Þau eiga að koma með hljóðfæri, nótur, ávarp, ljóð eða annað sem nota á við athöfnina. Aukaeintak af ljóðum, ávörpum og nótum á að afhenda fermingarstjóra á æfingunni.
Munið að koma stundvíslega til æfingarinnar. Komist fermingarbarn ekki, er mikilvægt að foreldri eða forráðamaður komi í þess stað. Æfingin hefst þegar allir eru komnir og sestir í sitt sæti í salnum. Komið staðráðin í að gera ykkar besta, fljótt og vel.

Hópmynd
Flestir þátttakendur hafa óskað eftir að fá hópmynd. Anna Fjóla Gísladóttir, ljósmyndari (s. 553 9571 / 898 3410), mun taka hana í lok athafnar í Háskólabíói. Myndin verður 30 x 24 cm, í lit og kostar 2.800 kr. Búið er að skrá þá sem hafa óskað eftir mynd. Þeir munu fá hana í pósti eða afhenta persónulega, ásamt gíróseðli.

Athugið: Hópmyndin er ekki innifalin í gjaldi Siðmenntar vegna fermingarathafnarinnar.

Kostnaður vegna fermingarathafnarinnar
Endanlegt verð vegna athafnarinnar liggur ekki fyrir en áætlaður kostnaður er kr. 3.500 á hvert barn. Þessari upphæð er ætlað að standa straum af kostnaði, t.d. af aðfengnum dagskráratriðum, leigu á flygli, blómaskreytingum, prentun á dagskrá og fleiru. Gíróseðill vegna þessa verður sendur út um viku fyrir fermingu.

Annað
Þeir sem eiga eftir að greiða námskeiðsgjaldið eru beðnir að standa skil á því hið fyrsta.

Bestu kveðjur,
Dröfn, Hope, Jón, Kristín, Ólöf og Þórhallur í undirbúningsnefndinni.

Til baka í yfirlit