Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Siðrænn húmanismi eins og ég skil hann

Stutt samantekt.

Vegna umræðna um stefnuskrá Siðmenntar tel ég rétt að ég greini frá skilningi mínum á siðrænum húmanisma. Hér verður aðeins stiklað á stóru og ýmislegt hér krefst vafalaust frekari skýringa. Ég reyni hér að rökstyðja þá meiningu mína að dulhyggja og húmanismi eigi ekki samleið.

1. Fyrst ber að nefna að húmanismi er mónismi (einhyggja), þ.e. veröldin er aðeins eins eðlis og skiptist ekki í tvö eins og dúalismi (tvíhyggja) gerir ráð fyrir (skipting í „náttúrulegt“ og „yfirnáttúrulegt“). Mónismi og materíalismi (efnishyggja) eru efnislega náskyld hugtök, en sakir margvíslegrar misnotkunar á orðinu „materíalismi“ er ekki alltaf heppilegt að nota það.

2. Rationalismi (skynsemisstefna) er mikilvæg forsenda húmanismans. Í rationalismanum felst að við eigum ávallt að leita nýs sannleika með hjálp skynsemi og þarafleiðandi rökhugsunar. Efahyggja er nátengd rationalismanum.

Það er augsýnilega ekki rétt að halda því fram að maðurinn komist yfirleitt aðeins að niðurstöðu með hjálp rökhugsunar! Tilfinningar, innsæi og umframallt vani ráða e.t.v. mestu um daglega breytni okkar. Því ber okkur að nota rökhugsun sem mest, t.d. til að sjá hvaða tilfinningar, hvaða innsæi og hvaða vani nýtist okkur best!

3. Okkur ber að leggja áherslu á frjálsan vilja mannsins til að velja og hafna; samtímis því ber okkur að þroska getu okkar til að velja og hafna. Það er m.a. siðferði. Þótt vissulega séu til ákveðin náttúrulögmál ber að varast að nýta þau við skilgreiningar á flóknum fyrirbærum mannlegs samfélags. Trú á löggengisstefnu í mannlegum samskiptum er náskyld guðstrú, var t.d helsta einkenni náttúruguðfræðinnar á 18. og 19. öld (þ.e. náttúran = guð).

Afneitun nauðhyggju skilur siðrænan húmanisma á síðari hluta 20. aldar greinilega frá margvíslegri vísindahyggju fyrri tíma. Við vitum meira nú, t.d. vitum við stöðugt meira um hlutverk tilviljana í „heimi raunvísinda“, og þá ekki síður í mannlegu samfélagi. Að auki má aldrei vanmeta hlutverk huglægra þátta í samfélagsþróun.

Að rækta gott siðferði er því sérstök nauðsyn. Við reynum að gera slíkt án guðstrúar. Þetta er lífsskoðun okkar.

4. Ég tek undir orð Richard Leakey og fjölda annarra vísindamanna og heimspekinga sem treysta hvorki á löggengi né yfirnáttúruleg öfl: Menning (culture) er að sjálfsögðu það sem einkennir manninn frá öðrum dýrum og mikilvægustu þættir menningar felast í „consciousness, compassion, morality, language“, þ.e. vitund um stöðu sína, samúð með öðrum, siðferði, tungumál (í öllum flóknum myndum þess). Með „vitund“ er að sjálfsögðu átt við þær gáfur sem einkenna manninn sérstaklega. Í biblíunni er þetta snilldarlega útskýrt sem skilningstré góðs og ills.

Gísli Gunnarsson, á síðasta degi dymbilviku 1995.

Til baka í yfirlit