Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Mesta fjölgun frá desember 2022 í Siðmennt

Mesta fjölgun frá desember 2022 í Siðmennt

Alls voru 226.763 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. maí síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 706 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.981 skráða meðlimi og hefur þeim fjölgað um 132 á áðurnefndu tímabili. Í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.935 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 18 frá 1. desember 2022.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2022 til 1. maí 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi verið mest í Siðmennt eða um 193 meðlimi, sem er um 3,6% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 132 meðlimi, sem er um 0,9% fjölgun. Einnig er töluverð fjölgun meðlima í Ásatrúarfélagið en þar hefur fjölgað um 117 meðlimi frá 1. desember 2022 eða um 2%. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 58,6%, en nú eru 46 meðlimir skráðir í félagið. 

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.207 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,7% landsmanna. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 76.251 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi. Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

(Frétt tekin af heimasíðu Þjóðskrár: hlekkur)

Til baka í yfirlit