Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Borgaraleg ferming 2027: Kynningarfundur 25. ágúst

Borgaraleg ferming 2027: Kynningarfundur 25. ágúst
Þann 25. ágúst 2026 verður haldinn kynningarfundur fyrir borgaralega fermingarfræðslu 2027 í sal 2 í Smárabíó. Öllum áhugasömum fermingarbörnum og aðstandendum þeirra er velkomið að mæta.
Fundurinn er fyrir þau sem velta fyrir sér:
  • Hvað er borgaraleg ferming?
  • Hvað er kennt í fermingarfræðslu?
  • Hvaða þemanámskeið eru í boði?
  • Er Úlfljótsvatns-fermingarhelgi eitthvað fyrir mig?
  • Hvar og hvenær bjóðum við upp á hópathafnir?
  • Hvað er einkaferming?
Umræður í lokin og spurningar velkomnar.
Hægt er að melda sig á Facebook viðburði á Facebook síðu Siðmenntar
Fundinum verður streymt á Facebook-vegg Siðmenntar.
Til baka í yfirlit