Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Efast á kránni - Gervigreind og mennska

Efast á kránni - Gervigreind og mennska
Efast á kránni heldur áfram!

Miðvikudaginn 28. október mun Halldóra Mogensen, stjórnarformaður Samtaka um mannvæna tækni, ræða um "Gervigreind og mennsku".

Halldóra Mogensen situr í vísindanefnd Evrópusambandsins um gervigreind og er formaður Samtaka um mannvæna tækni. Hún sat á Alþingi 2016 til 2024. Í dag skrifar hún og heldur erindi um gervigreind, stafrænt fullveldi og hvernig tækni mótar lýðræði, samfélag og líf fólks.

Viðburðurinn hefst klukkan 17:00 í Húsi Máls og Menningar á Laugavegi.

Öll velkomin og vonumst til að sjá sem flest.

Happy hour á barnum 17-18.

Staðurinn er aðgengilegur fyrir hjólastóla!
Til baka í yfirlit