Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Sumarkveðja frá formanni Siðmenntar

Sumarkveðja frá formanni Siðmenntar

Kæru félagar,

Þá er sumarið loksins komið og við hæfi að staldra aðeins við og deila með ykkur nokkrum af þeim verkefnum og viðburðum sem við höfum verið að stússa í undanfarna mánuði. 

Fyrst langar mig að minna á einn af mínum uppáhaldsviðburðum, Hoppað í hnapphelduna, sem að þessu sinni verður haldinn á kvennafrídaginn, 19. júní, í Tjarnarsal Ráðhússins líkt og undanfarin ár. Þar gefst ástföngnu fólki kostur á að tengjast hvort öðru hjóna-bandi í hlýrri, persónulegri og húmanískri athöfn. Það er alltaf einstakt að sjá fólk marka þessi tímamót í lífi sínu á eigin forsendum, í anda þeirra húmanísku gilda sem Siðmennt stendur fyrir. 

Í vetur höfum við verið dugleg að halda uppi spjallviðburðinum okkar góða, Efast á kránni, sem hefur fest sig í sessi sem skemmtilegur og aðgengilegur vettvangur fyrir umræður um allar stóru spurningarnar, samfélagið og samtímann. Á árinu höfum við meðal annars fengið Bergsvein Birgisson, rithöfund, til að ræða stöðu húmanisma í samtímanum og Dr. Sigrúnu Helgu Lund til að leiða okkur inn í heim tölfræðinnar og sýna hvernig hægt er að blekkja með tölum jafnt sem upplýsa. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu mörg mæta á þessa viðburði og taka þátt í opnum, gagnrýnum og forvitnilegum samræðum um málefni sem gjarnan brenna á okkur öllum. Við finnum vel að þörfin fyrir gagnrýna hugsun og upplýsta umræðu er eflaust meiri nú en nokkru sinni! 

En Siðmennt er ekki séríslenskt fyrirbæri. Eins og mörg vita erum við hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem vinnur að mannréttindum, frelsi og húmanisma um allan heim. Í janúar skrifaði Siðmennt undir opið bréf hins alþjóðlega samfélags húmanista, Humanists International, ásamt tugum systursamtaka víðs vegar um heim, þar sem lýst var yfir áhyggjum af fyrirætlan Bandaríkjanna að segja sig úr mikilvægu alþjóðasamstarfi og hætta stuðningi við fjölþjóðlegar stofnanir sem stuðla að bættum heimi. Fyrir okkur snýst það ekki um pólítík eða hagsmuni einstakra ríkja heldur um þá sannfæringu okkar að stærstu verkefni mannkyns verði best leyst með samstarfi, samtali og ekki síst virðingu fyrir mannréttindum. 

Við erum því sérstaklega spennt fyrir heimsþingi húmanista, sem haldið verður í Ottawa í Kanada í ágúst. Þema þingsins í ár er húmanismi sem viðnám, á ensku Humanism as Resistance, og mun það leiða saman húmanista alls staðar að úr heiminum til að ræða hvernig við getum staðið vörð um mannlega reisn, frelsi og lýðræðisleg gildi þegar fast er að þeim sótt. 

Þótt heimurinn standi nú frammi fyrir mikilli ólgu og óvissu er samt margt sem gefur tilefni til bjartsýni. Á hverjum degi sjáum við fólk velja samvinnu fram yfir sundrungu, forvitni fram yfir fordóma og samkennd fram yfir ótta. Það eru þessi bæði litlu og stóru skref sem færa samfélagið okkar góða vonandi fram á við, þrátt fyrir allt!  

Fram undan eru líka fleiri tækifæri til að hittast og njóta lífsins og samveru við hvert annað. Ég vil sérstaklega minna á Sumarhátíð Siðmenntar sem verður að þessu sinni haldin laugardaginn 15. ágúst á Klambratúni. Sumarhátíðin er vettvangur fyrir félagsfólk á öllum aldri að koma saman, spjalla og njóta dagsins í góðum félagsskap. Nánari upplýsingar um dagskrá og tilhögun verða kynntar síðar, en ég hvet ykkur til að taka daginn frá!  

Fyrir hönd stjórnar vil ég þakka ykkur öllum sem styðjið starf félagsins, mætið á viðburði, takið þátt í athöfnum, bjóðið fram krafta ykkar eða fylgist með af hlíðarlínunni. Hið húmaníska samfélag er öflugt vegna fólksins sem því tilheyrir, og ég hlakka til að halda áfram þessu mikilvæga starfi með ykkur.

Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona að við sjáumst sem víðast á vettvangi Siðmenntar á komandi mánuðum. 

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir

Formaður Siðmenntar

Til baka í yfirlit