Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Sigþrúður ráðin til Siðmenntar

Sigþrúður ráðin til Siðmenntar

Sigþrúður Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Siðmenntar. Hún hefur verið framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins undanfarin 16 ár, og áður forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, verkefnastjóri innleiðingar Olweusarverkefnisins og að auki setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka. Sigþrúður hefur háskólapróf í félagsfræði, mannfræði og jákvæðri sálfræði, auk kennsluréttinda á háskólastigi.

Helstu verkefni Sigþrúðar varða stefnumótun félagsins, almennan rekstur, mannauðsmál og samskipti við bæði stjórnkerfið og almenna félaga. Stjórn Siðmenntar telur Sigþrúði einstaklega vel hæfa til starfsins, enda hefur hún áralanga reynslu af stjórn og rekstri félagasamtaka og húmanísk lífsgildi að leiðarljósi. Stjórn Siðmenntar hlakkar til samstarfsins og býður Sigþrúði velkomna til starfa. Hún hefur störf 1. september.

Siðmennt er félag siðrænna húmanista á Íslandi. Tæplega fimm þúsund félagar eru í Siðmennt og er félagið sjötta stærsta lífsskoðunarfélagið á Íslandi og það allra stærsta ef litið er til aðeins veraldlegra lífsskoðunarfélaga. Helstu verkefni félagsins eru barátta fyrir veraldlegu samfélagi og auknum mannréttindum jaðarsettra hópa, þjónusta við félagsfólk og athafnir á lífsins tímamótum, þ.e. við nafngjöf, hjónavígslu, fermingu og útför.

Til baka í yfirlit