Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Þurfum við að óttast íslam?

Siðmennt, félag siðrænna húmanista boðar til málþings um íslam laugardaginn 29. nóvember næstkomandi kl. 11-13 á Hótel Sögu. Markmiðið með málþinginu er að hvetja til málefnalegrar og gagnrýnnar umræðu um íslam á Íslandi. Yfirskrift málþingsins er: Þurfum við að óttast íslam?

Allir sem hafa áhuga á málefninu eru boðnir velkomnir. Aðgangur ókeypis.

Fjórir frummælendur halda stutt erindi (10 til 12 mínútur) og síðan verða pallborðsumræður og spurningar úr sal bornar upp.

Frummælendur:
Sigurður Hólm Gunnarsson – iðjuþjálfi og stjórnarmaður í Siðmennt
Erindi: Trúfrelsi, veraldlegt samfélag og íslam
Ibrahim Sverrir Agnarsson – formaður Félags múslima á Íslandi
Erindi: Hugmyndafræði íslam og öfgahópar
Guðrún Margrét Guðmundsdóttir – doktorsnemi í mannfræði
Erindi: Gagnrýni á íslam á tímum íslamófóbíu
Helgi Hrafn Gunnarsson – þingmaður
Erindi: Óttafull viðbrögð og lýðræðisleg ábyrgð

Fundastjórn:
Steinunn Rögnvaldsdóttir – félags- og kynjafræðingur og stjórnarmaður í Siðmennt

Hvenær: Laugardaginn 29. nóvember kl. 11:00-13:00
Hvar: Hótel Saga  – Salur: Snæfell
Kostnaður: Aðgangur er heimill öllum og er ókeypis
_________
Nánari upplýsingar um málþingið veitir Sigurður Hólm Gunnarsson – stjórnarmaður í Siðmennt
Sími: 898-7585. Netfang: siggi@sidmennt.is

Facebook atburður: https://www.facebook.com/events/1600399686854865/
Siðmennt: www.sidmennt.is

Til baka í yfirlit