Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Komdu með til Ottawa!

Komdu með til Ottawa!
Húmanistar frá öllum heimshornum flykkjast til Ottawa þann 7.-9. ágúst 2026, til að taka þátt í heimsþingi húmanista.

Heimþingið, World Humanist Congress 2026, er vettvangur fyrir húmanista frá öllum löndum til að koma saman og ræða saman um húmanisma, mannréttindi og viðspyrnu, en þema þingsins í ár er: Humanism as resistance. Nánari upplýsingar um dagskrána og þingið er að finna á www.worldhumanistcongress.org

Siðmennt styrkir nokkra þátttakendur um 150.000 kr. til ferðalagsins. Ef þú hefur hug á að sækja Heimsþing húmanista í Ottawa 7.-9. ágúst og óskar eftir þátttökustyrk frá Siðmennt, þá biðjum við þig um að senda tölvupóst á gudrunthora@sidmennt.is fyrir 1. júní.

Stjórn Siðmenntar áskilur sér að velja úr umsóknum, byggt á virkni í félagsstarfi innan Siðmenntar, en öllum er heimilt að sækja um; eina skilyrðið er að vera félagi í Siðmennt, annað hvort með skráningu hjá Þjóðskrá, eða á vef félagsins.
Til baka í yfirlit