Húmanistar frá öllum heimshornum flykkjast til Ottawa þann 7.-9. ágúst 2026, til að taka þátt í heimsþingi húmanista.
Heimsþingið, World Humanist Congress 2026, er vettvangur fyrir húmanista frá öllum löndum til að koma saman og ræða saman um húmanisma, mannréttindi og viðspyrnu, en þema þingsins í ár er: Humanism as resistance.
Hvort sem þú ert athafnastjóri, fermingarfræðari, sjálfboðaliði eða almennur félagi í Siðmennt, þá er þér velkomið að slást í íslenska fararhópinn.
Komdu með til Ottawa!
Siðmennt styrkir nokkra þátttakendur um 150.000 kr. til ferðalagsins. Ef þú hefur hug á að sækja Heimsþing húmanista í Ottawa 7.-9. ágúst og óskar eftir þátttökustyrk frá Siðmennt, þá biðjum við þig um að senda tölvupóst á gudrunthora@sidmennt.is
Stjórn Siðmenntar áskilur sér að velja úr umsóknum, byggt á virkni í félagsstarfi innan Siðmenntar, en öllum er heimilt að sækja um; eina skilyrðið er að vera félagi í Siðmennt, annað hvort með skráningu hjá Þjóðskrá, eða á vef félagsins.
Spennandi dagskrá
Heimsþingið sjálft stendur frá 7.-9. ágúst og á dagskrá eru spennandi erindi sem varða húmanisma og viðspyrnu. Nánari upplýsingar um dagskrána og þingið er að finna á www.worldhumanistcongress.org