Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Borgaraleg ferming 23. apríl 2006

Mikilvægar upplýsingar er varða fermingarathöfnina.
(Þessar upplýsingar hafa einnig verið sendar bréfleiðis til þátttakenda)

Kæra fermingarbarn, foreldri eða forráðamaður!
Nú eru línur varðandi fermingarathöfnina farnar að skýrast og því tímabært að láta ykkur vita um gang mála.


Undirbúningur athafnarinnar
Hjálagt eru listar yfir hvaða börn verða í hvorri athöfn. Dagskráin er nú farin í prentun og því er ekki lengur hægt að skipta um hóp. (Sjá lista)

Hægt er að skoða dagskrá BF 2006 hér (pdf skjöl):
Fyrri athöfn – blaðsíða 1
Fyrri athöfn – blaðsíða 2
Seinni athöfn – blaðsíða 1
Seinni athöfn – blaðsíða 2

Nokkur fermingarbörn eru nú að æfa dagskrá með tónlistarflutningi og upplestri. Sigrún Valbergsdóttir leikstjóri mun hafa samband við börnin, sem ætla að lesa upp, og bjóða þeim heim til að leiðbeina þeim.

Ræðumenn í ár verða Tatjana Latinovic, formaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna, og Andri Snær Magnason, rithöfundur. Þau flytja stutt ávörp í báðum athöfnum. Fermingarstjóri verður Steinar Harðarson í báðum athöfnum.

Fermingarathafnir
Athafnirnar fara fram sunnudaginn 23. apríl 2006 kl. 11:00 og kl. 13:00 í Háskólabíói.
Fermingarbörnin í fyrri athöfninni mæti stundvíslega kl. 10:30 og fermingarbörnin í seinni athöfninni mæti kl. 12:30. Hvor athöfn mun væntanlega standa yfir í um klukkustund. Dagskráin lofar góðu. Þar verða atriði í umsjá fermingarbarna og tónlist og stutt ávörp. Við athöfnina munu fermingarbörn fá afhent skjal sem staðfestir þátttöku þeirra í undangengnu fræðslunámskeiði.
Að athöfn lokinni fer fram hópmyndataka sem tekur væntanlega um 20 mínútur, sjá nánari upplýsingar hér að neðan.

Gestir rísa úr sætum þegar fermingarbörn ganga í salinn.
Vinsamlegast slökkvið á farsímum meðan á athöfninni stendur.

Æfingar
Æfingar fyrir fermingarathöfnina verða í Háskólabíói
laugardaginn 22. apríl 2005
kl. 9:00 fyrir börnin í fyrri athöfn og
kl. 11:00 fyrir börnin í seinni athöfn.

Öll fermingarbörn verða að mæta.
Allur hópurinn æfir inngöngu í sal, uppgöngu á svið, móttöku skírteina, útgöngu af sviði og uppstillingu fyrir myndatöku. Að því loknu munu þau fermingarbörn, sem verða með atriði í athöfninni, æfa sinn þátt. Þau eiga að koma með hljóðfæri, nótur, ávarp, ljóð eða annað sem nota á við athöfnina.
Aukaeintak af ljóðum, ávörpum og nótum á að afhenda fermingarstjóra á æfingunni.
Munið að koma stundvíslega til æfingarinnar. Komist fermingarbarn ekki er mikilvægt að foreldri eða forráðamaður komi í þess stað. Æfingin hefst stundvíslega og þá eiga allir að vera sestir í sitt sæti í salnum. Listi með sætisnúmerum verður sendur út síðar og mun einnig hanga uppi á æfingunni. Komið
staðráðin í að gera ykkar besta, fljótt og vel.

Nóg af sætum
Salurinn í Háskólabíói er með 970 sæti. Vegna þess að við verðum með tvær athafnir í ár þurfum við ekki að takmarka sætafjöldann sem hver fjölskylda fær. Sumar fjölskyldur hafa óskað eftir 7-9 sætum og aðrar eftir 20-30 sætum þannig að þetta jafnast út.

Hópmynd
Flestir þátttakendur hafa óskað eftir að fá hópmynd. Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari (s. 553 9571 / 898 3410) mun taka hana í lok athafnar í Háskólabíói. Myndin verður 30 x 24 cm, í lit og kostar 3.000 kr. Búið er að skrá þá sem hafa óskað eftir mynd. Þeir munu fá hana í pósti eða afhenta persónulega, ásamt gíróseðli.

Borgaraleg ferming á mynddiski (DVD)
Upptaka af borgaralegri fermingu 23. apríl 2006 verður fáanleg á mynddiski ásamt myndasýningu, sem fer fram í byrjun athafnarinnar, og mörgum ljósmyndum af athöfninni. Óskar Ásgeirsson,
félagi í Siðmennt, sér um upptöku og frágang. Vel verður vandað til upptökunnar og alls frágangs. Búið er að skrá þá sem hafa óskað eftir mynddiski. Eintakið kostar 3000 krónur og rennur lítill hluti í styrktarsjóð Siðmenntar. Þegar diskarnir eru tilbúnir og búið að fjölfalda þá verða þeir sendir með póstkröfu heim til þeirra sem hafa pantað þá.

Kostnaður vegna fermingarathafnarinnar
Endanlegt verð fyrir athöfnina liggur ekki fyrir en áætlaður kostnaður er ca. kr. 5.500 á hvert barn. Þessari upphæð er ætlað að standa straum af öllum kostnaði, t.d. af húsaleiga, aðfengnum dagskráratriðum, leigu á flygli, blómaskreytingum, prentun á dagskrá og fleiru. Gíróseðill vegna þessa verður sendur út snemma í apríl. Þau börn, sem búa á landsbyggðinni og ætla ekki að taka þátt í athöfninni í Reykjavík, verða ekki rukkuð fyrir þetta gjald.

Athugið: Hópmyndin og DVD eru EKKI innifalin í gjaldi Siðmenntar vegna fermingarathafnarinnar.

Annað
Þeir sem eiga eftir að greiða námskeiðsgjaldið eru beðnir að standa skil á því hið fyrsta, annars er ekki hægt að tryggja þátttöku í athöfn.

Með bestu kveðju,

Hope
s. 567-7752
hope@sidmennt.is

Til baka í yfirlit