Sumarstólstöður voru í gær, 21. júní, og í tilefni þeirra bauð Siðmennt upp á hátíðardagskrá á Rás 1.
Dagurinn hefur verið nefndur alþjóðadagur húmanista, enda fagna lífsskoðunar- og trúfélög þessum lengsta degi ársins víða um heim. Þetta er í þriðja sinn sem Siðmennt býður upp á slíka hátíðardagskrá í tilefni sólstaða en að þessu sinni hverfist útvarpsþátturinn um frelsið.
Í þættinum fáum við hugvekjur frá tveimur höfundum, þeim Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur og Baldvin Flóka Bjarnasyni. Einnig heyrum við frumsamin ljóð sem sigruðu í fyrstu ljóðakeppni Siðmenntar, en höfundar þeirra eru Auður Magndís, Guðrún Bjarnadóttir og Ægir Þór Jähnke.
Dagskrárgerð er í höndum Bjarna Snæbjörnssonar.