Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Mörður Árnason er látinn

Mörður Árnason er látinn

Mörður Árnason, húmanisti og fyrrum stjórnarmeðlimur í Siðmennt, er nú látinn, 73 ára að aldri. Mörður tók sæti í stjórn Siðmenntar vorið 2019 og sat í stjórn þar til á aðalfundi félagsins á þessu ári. Mörður var jafnframt athafnastjóri hjá félaginu frá 2018 og sinnti fjölmörgum athöfnum á íslensku, skandinavísku, ensku og frönsku. 


Baráttumaður og brúarsmiður

Mörður var einstakur baráttumaður fyrir trúfrelsi í störfum sínum fyrir Siðmennt, sem aðgerðasinni og sem Alþingismaður. Hann var varafulltrúi í stjórn Siðmenntar, en sérdeilis virkur sem slíkur; mætti iðulega á stjórnarfundi og tók að sér trúnaðarstörf fyrir hönd félagsins, m.a. við Samráðsvettvang trúfélaga og lífsskoðunarfélaga á Íslandi. 

Merði þótti mikilvægt að draga ólík lífsskoðunarfélög að borðinu og lagði sig fram um að greiða fyrir samstarfi þeirra. Hann var meðal annars einn af hvatamönnum þess að vettvangurinn sendi út sameiginlega yfirlýsingu sem fordæmdi stríðsátök í Ísrael og Palestínu, ásamt því að vera einn af forystumönnum vettvangsins þegar formlegur félagsskapur var stofnaður utan um hann á síðasta ári. 

Mörður var einstaklega óeigingjarn á tíma sinn; alltaf tilbúinn til að prófarkalesa ársskýrslur, þýða yfirlýsingar og leggja félaginu lið, hvort sem var með ráðgjöf, hugmyndum eða einfaldlega við pylsuframreiðslu á fjölskylduhátíðum Siðmenntar. 


Húmanisti og húmoristi

„Auðvitað má segja sem svo að ef við höldum okkur við það að menn utan trúfélaga borgi sérstakan skatt, eitthvað annað en í trúfélögin, þá gætum við eins skyldað alla menn til að borga til íþróttafélaga --- ég mundi borga til KR og háttvirtur þingmaður. Hjálmar Árnason sennilega til sameiginlegs körfuknattleiksliðs Njarðvíkur og Keflavíkur.“ 

Gleði og húmor einkenndi baráttu Marðar fyrir trúfrelsi alla tíð. Tilvitnunin hér að framan er úr umræðum á Alþingi um frumvarp Marðar um „afnám gjalds á menn utan trúfélaga“ fyrir sléttum 27 árum. Þingmaðurinn klykkti svo kankvíslega út með yfirlýsingu um að „þeir sem ekkert vildu borga ættu þá að borga í einhvern sérstakan sjóð sem gæti t.d. séð þingmönnum fyrir heilsuræktarferðum til Færeyja.“ 

Innan vébanda Siðmenntar var kímnin heldur ekki langt undan; í inntökuviðtal fyrir hlutverk athafnastjóra mætti Mörður með útprentaða hugvekju sem hann kom fyrir í leðurbundinni kápu Passíusálmanna og glotti yfir viðbrögðum inntökunefndarinnar. Hann var manna fyrstur til að grípa míkrafóninn í karaókí, sem er fastur liður á athafnastjóraþingum og söng Bítlalögin hástöfum eftir að hafa æft sig rækilega í pottinum á undan. 


Siðmennt syrgir góðan félaga. Mörður var hjálpsamur, vitur, skýr og gagnrýninn í hugsun en jafnframt foringjahollur, framsýnn, barngóður og mikill gleðigjafi. Forysta félagsins sendir samúðarkveðjur til aðstandenda og vina Marðar og þakkar fyrir samfylgdina.

Með góðum og hlýjum kveðjum

 

Til baka í yfirlit