Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Opnun nýrra námskeiða í borgaralegri fermingarfræðslu

Opnun nýrra námskeiða í borgaralegri fermingarfræðslu

Nú eru haustnámskeiðum borgaralegrar fermingarfræðslu lokið og allt komið á fullt við undirbúning vorsins.

Vegna aðsóknar á námskeið í borgaralegri fermingarfræðslu bættum við nýverið við tveimur námskeiðum. Um er að ræða:

Fermingarbúðir á Úlfljótsvatni helgina 26. - 28. febrúar.

Helgarnámskeið í Þróttheimum helgarnar 20. -21. febrúar og 6. - 7. mars.

Á höfuðborgarsvæðinu eru einnig nokkur pláss laus í fræðslu í Hafnarfirði.

Á Akranesi, Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Reykjanesi og Selfossi eru einnig laus pláss.

Allar skráningar fara fram í gegnum verslun Siðmenntar á Abler.

Við hlökkum til fermingarársins 2027 með ykkur! 

Til baka í yfirlit