
Fjarnámskeið
Boðið er upp á að taka fermingarfræðslu í fjarnámi, en það getur hentað börnum sem komast ekki á námskeið vegna landfræðilegra áskoranna, eða þeim sem hentar betur að taka þátt á stafrænum vettvangi heldur en í kennslustundum. Fjarnám fer fram á sunnudögum.
Staðsetning
Námskeið fer fram yfir internetið
Námskeiðstilhögun
Kennsla fer fram í gegnum fjarfundarforrit, 6 skipti hvert námskeið. Ætlast er til þátttöku barna í gegnum mynd og tal/hljóð.
Boðið verður upp á fjarnám á íslensku og ensku.
Verð
35.000 kr.
Félagar í Siðmennt fá sérstök afsláttarkjör. Upplýsingar um þau má finna hér.
Skráning
Skilyrði fyrir þátttöku í fermingarathöfn er að hafa setið fermingarnámskeið. Gangið frá skráningu til að tryggja sæti á það námskeið sem hentar ykkur best.