
Húmanísk fermingarfræðsla
Fermingarfræðsla Siðmenntar miðar að því að efla unglinga og kynna þau fyrir húmanískum hugtökum. Á námskeiðinu er lagt upp með því styrkja sjálfsmynd, hvetja til víðsýni og styðja við uppbyggilegt hugarfar.
Í hópi fermingarbarna eru ólíkir einstaklingar með ólíkar þarfir. Þess vegna bjóðum við upp á fermingarfræðslu með mismunandi sniði – lagað að hverjum og einum. Viðfangsefni fermingarfræðslunnar grundvallast í námskrá borgaralegrar fermingarfræðslu, og er nálgast þau á lifandi hátt í námskeiðunum.
Markmiðin eru alltaf þau sömu; að búa fermingarbarnið undir það að komast í fullorðinna tölu.
Skráning opnar í fermingarfræðslu 1. september 2025 kl. 8.
Helgarnámskeið
Helgarnámskeið eru kennd yfir tvær helgar, fjórar klukkustundir á dag í fjóra daga. Helgarnámskeið henta þeim sem vilja sökkva sér djúpt ofan í hverja meginstoð námskrárinnrar fyrir sig. Helgarnámskeið eru haldin bæði á höfuðborgarsvæðinu og í helstu þéttbýliskjörnum, en staðarval er háð þátttöku hverju sinni.
Fermingarbúðir
Í ár verður aftur boðið upp á fermingarbúðir á vegum Siðmenntar: fermingarnámskeið fyrir þau fermingarbörn sem vilja taka allan pakkann á einni helgi og koma heim örþreytt, með fullt af nýjum vinum og djúpt sokkin í tilvistarlegar spurningar. Fermingarbúðir verða haldnar á Úlfljótsvatni.
Fjarnám
Boðið er upp á að taka fermingarfræðslu í fjarnámi fyrir þau börn sem komast ekki á námskeið vegna landfræðilegra áskoranna.
Ekki er í boði fyrir önnur börn að skrá sig í fjarnám. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst: ferming@sidmennt.is
Fermingarfræðsla fyrir fötluð börn
Siðmennt hefur haldið fermingarfræðslu í Klettaskóla fyrir fötluð börn.
Námskeiðið byggir á sömu námskrá, en tímarnir eru styttri og kenndir í minni hópum og verkefni sniðin að hæfni hvers og eins.
Námskeiðið er haldið ef áhugi er fyrir og við hvetjum áhugasama foreldra og fermingarbörn að hafa samband í tölvupósti: ferming@sidmennt.is
Þemanámskeið
Kennsluhættir út fyrir kassann!
Á þemanámskeiðum er lagt upp með óhefðbundna nálgun þar sem fermingarbörnin eru virkjuð í gegnum áhugasvið sín til að takast á við viðfangsefni námskeiðsins. Þannig verða kennsluhættirnir frábrugðnir kennsluháttum grunnnámskeiðanna og skapandi aðferðafræði notuð til að miðla viðfangsefnunum til fermingarbarnanna.
Þátttaka í þemanámskeiði kemur í stað þátttöku í öðrum fermingarnámskeiðum.
Við bjóðum upp á þemanámskeið þar sem námskrá húmanískar fermingarfræðslu er tvinnuð saman við og kennd í gegnum ákveðin þemu.
Árið 2026 verða eftirfarandi þemanámskeið í boði:
