Aðalfundur Siðmenntar 2025 var haldinn laugardaginn 7. mars kl. 11:00 í sal Nauthóls, Nauthólsvegi 106. Fundarstjóri var Inga Auðbjörg K. Straumland og fundarritari Lísa Margrét Gunnarsdóttir.
Sjá ársskýrslu hér.
Ársreikningur 2025 var samþykktur.
Engar lagabreytingartillögur lágu fyrir fundinum og ákveðið var að halda félagsgjöldum óbreyttum í 6.000,- kr. á ári.
Eftirfarandi viðurkenningar voru veittar:
Fræðslu- og vísindaviðurkenning
Samtökin ´78 - kr 100.000. Samtökin ´78 fengu viðurkenninguna fyrir vinnustofur um gagnræðu. Í grundvallaratriðum er gagnræða öll tjáning sem miðar að því að minnka áhrif skaðlegrar og hatursfullrar orðræðu á samfélag og einstaklinga. Í reynd felur gagnræða í sér að við tökum þátt í umræðunni með meðvituðum hætti.
Húmanistaverðlaun
Félagið Afstaða - kr. 200.000. Félagið var stofnað árið 2005 og markmið þess eru fyrst og fremst að vinna að tækifæri fyrir fanga til ábyrgðar, endurreisnar og að búa þeim skilyrði til farsællar endurkomu út í samfélag manna.
Eftirfarandi voru kjörin í stjórn Siðmenntar:
Stjórn:
- Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir
- Erla Sigurlaug Sigurðardóttir
- Kristrún Ýr Einarsdóttir
- Sigurður Rúnarsdóttir
- Sigurður Örn Stefánsson
Varafulltrúar:
- Svavar Kjarrval
- Valgerður Þorbjörg Elín Guðjónsdóttir