Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Aðalfundur 2026 - framboð

Aðalfundur 2026 - framboð

Aðalfundur Siðmenntar 2026 verður haldinn laugardaginn 7. mars kl. 11:00 - 14:00 í sal Nauthóls að Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík. Léttur hádegisverður verður í boði.

Á aðalfundi skal kjósa fjóra meðlimi í aðalstjórn, að formanni undanskildum, og tvo varafulltrúa. Framboðsfrestur rann út á miðnætti laugardaginn 21. febrúar. Borist hafa eftirfarandi framboð til stjórnar og varafulltrúa:

Framboð í aðalstjórn eru:

  • Erla Sigurlaug Sigurðardóttir
  • Kristrún Ýr Einarsdóttir
  • Sigurður Rúnarsson


Framboð til varafulltrúa eru:

  • Helga Bára Bragadóttir


Að ofangreindu er ljóst að ekki bárust framboð til allra stjórnarsæta eða varafulltrúa og er því tekið við framboðum í þau sæti sem vantar á aðalfundi, sbr. grein 4.4 í lögum Siðmenntar.

Til baka í yfirlit