Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Aðalfundur 2026

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Siðmenntar 2026 verður haldinn laugardaginn 7. mars kl. 11:00-14:00 í sal Nauthóls að Nauthólsvegi 106, 101 Reykjavík. Léttur hádegisverður verður í boði.

Dagskrá:

  1. Setning fundar og ræða formanns
  2. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  3. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
  4. Áritaðir reikningar fyrra árs lagðir fram til umræðu og samþykktar
  5. Lagabreytingar
  6. Ákvörðun félagsgjalda
  7. Kjör stjórnar, sbr. lög Siðmenntar grein 5.1. 
  8. Kjör félagslegra skoðunarmanna reikninga, sbr. lög Siðmenntar grein 6.7
  9. Afhending viðurkenninga
  10. Önnur mál

 

Stjórnarkjör
Vakin er sérstök athygli á 4.4. grein úr lögum Siðmenntar:
„Kjörgengi og rétt til atkvæðagreiðslu á aðalfundi hafa félagar sem skráðir eru í Siðmennt hjá Þjóðskrá og/eða fólk sem er skráð beint og hefur greitt félagsgjald undangengins starfsárs. Framboðsfrestur til stjórnar Siðmenntar rennur út tveimur vikum fyrir aðalfund. Náist ekki framboð til allra stjórnarsæta með 2 vikna fyrirvara má taka við framboðum á aðalfundi til þess sætis eða þeirra sæta sem í vantar.“

Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar rennur út á miðnætti laugardaginn 21. febrúar en á aðalfundi þann 7. mars verða kjörnir fjórir aðalmenn í stjórn og tveir varamenn. Framboðum skal skila til framkvæmdastýru Siðmenntar á netfangið gudrunthora@sidmennt.is. Með skulu fylgja upplýsingar um það hvort fólk sækist eftir sæti aðalmanns eða varamanns.

Undir dagskrárlið 5, lagabreytingar, mun Arndís Anna, formaður Siðmenntar, greina frá vinnu lagabreytinganefndar.

Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn félagsins tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund og verða þær svo sendar út viku fyrir fundinn.

Einnig minnir stjórn félagsins á tilnefningar til húmanistaviðurkenningarinnar og fræðslu- og vísindaviðurkenningar Siðmenntar, sem afhentar verða á fundinum. Hér má sjá meira um viðurkenningarnar auk þess sem senda má inn tilnefningar hér.

Til baka í yfirlit