Grunnstefna Siðmenntar
Húmanismi og hlutverk Siðmenntar
Siðmennt er lífsskoðunarfélag siðrænna húmanista. Það starfar á grundvelli mannréttinda, lýðræðis, jafnréttis og virðingar fyrir mannlegri reisn. Félagið byggir á þeirri sannfæringu að manneskjan beri sjálf ábyrgð á lífi sínu, siðferðilegum ákvörðunum og mótun þess samfélags sem hún er hluti af. Húmanismi er veraldleg lífsskoðun sem hafnar yfirnáttúrulegum öflum sem forsendu siðferðis, en byggir þess í stað á þekkingu, gagnrýninni hugsun, samræðu og samkennd.
Hlutverk Siðmenntar er að efla húmanísk gildi í íslensku samfélagi, standa vörð um lífsskoðunarfrelsi (trúfrelsi) og vera málsvari veraldlegs og réttláts lýðræðissamfélags. Félagið vill skapa vettvang fyrir einstaklinga til að leita lífsfyllingar, merkingar og siðrænnar leiðsagnar án trúarlegra forsendna, jafnt í daglegu lífi sem á mikilvægum tímamótum á lífsleiðinni.
Siðmennt sem samfélagslegur vettvangur
Siðmennt vill vera virkur þátttakandi í samfélagsumræðu, málsvari mannréttinda og vettvangur fyrir fólk sem vill lifa lífi sínu á húmanískum forsendum. Félagið leggur áherslu á fræðslu, opna umræðu og veraldlegar athafnir á mikilvægum tímamótum lífshlaupsins, sem byggjast á virðingu, persónulegri þýðingu og mannúð án trúarlegra forsendna.
Trúfrelsi og siðferðileg ábyrgð
Siðmennt lítur á siðferði sem mannlegt verkefni sem byggist á samkennd og réttlæti og felur í sér ábyrgð hvers einstaklings gagnvart öðru fólki, samfélaginu og náttúrunni.
Siðmennt styður veraldlegt samfélag þar sem lög og ríkisvald starfa ekki undir merkjum einstakra trú- eða lífsskoðunarfélaga og hygla ekki neinu þeirra, heldur vernda rétt allra borgara til að aðhyllast og iðka trúar- og lífsskoðanir sínar, svo lengi sem iðkun þeirra brýtur ekki gegn landslögum eða réttindum annars fólks. Hugsana-, skoðana- og trúfrelsi eru á meðal grundvallarmannréttinda og eru órjúfanlegur þáttur lýðræðislegs samfélags, samhliða tjáningarfrelsi, funda- og félagafrelsi og rétti til friðhelgi einkalífs.
Siðmennt lítur á baráttu gegn mismunun og fyrir jafnrétti sem sjálfsagðan hluta húmanískrar samfélagssýnar. Trúfrelsi felur ekki aðeins í sér rétt til trúar, heldur einnig réttinn til trúleysis, til þess að skipta um trú eða lífsskoðun og gagnrýna hvaða lífsskoðun sem vera skal.
Tjáningarfrelsi og gagnrýnin hugsun
Tjáningarfrelsið er hornsteinn lýðræðis og framfara. Rétturinn til að tjá skoðanir sínar, þar á meðal gagnrýni á trúarlegar hugmyndir og stofnanir, er samfélaginu nauðsynlegur til að tryggja opna umræðu, gagnrýna hugsun og samfélagslega þróun. Félagið fagnar því að refsiákvæði vegna svokallaðs guðlasts hafi verið tekið úr íslenskum lögum og telur mikilvægt að vinna gegn slíkum ákvæðum á alþjóðavettvangi.
Um leið leggur Siðmennt áherslu á að tjáningarfrelsið sé nýtt af virðingu fyrir mannlegri reisn og öryggi alls fólks. Gagnrýni hugmynda réttlætir hvorki hótanir, ofbeldi, áreitni né einelti.
Rétturinn til lífsfyllingar
Siðmennt telur að hver manneskja eigi rétt á að leita lífsfyllingar og móta eigið líf í samræmi við lífsskoðun sína, gildi og samvisku. Í lagalegri og félagslegri umgjörð samfélagsins þarf að gera ráð fyrir fjölbreyttum lífsskoðunum og tryggja að fólk sé ekki jaðarsett vegna lífsskoðunar sinnar.