Stefnuyfirlýsing norrænna húmanista
Stefnulýsing norrænna húmanista frá 2016 er framsetning á sameiginlegri heimsmynd norrænna húmanistasamtaka.
Sex samtök á norðurlöndunum hafa skrifað undir yfirlýsinguna:
- Siðmennt
- Human-Etisk Forbund (Noregur)
- Humanisterna (Svíþjóð)
- Humanistisk Samfund (Danmörk)
- Suomen Humanistiliitto (Finnland)
- Vapaa-ajattelijain Liitto (Finnland)
- Auk þess undirritaði Húmanistafélag Föroya frá Færeyjum yfirlýsinguna eftir að hún var birt árið 2016.
Húmanismi er veraldleg lífsskoðun
Hann byggist á því að mennirnir séu hluti af náttúrunni, fæddir frjálsir og jafnir að sæmd og réttindum, og gæddir rökhugsun og samvisku.
Húmanistar telja ekki að tilveran hafi fyrirframákveðinn tilgang
Okkur er öllum frjálst að finna lífi okkar merkingu og tilgang á grundvelli persónulegrar íhugunar, félagslegra samskipta og hinnar ríkulegu menningar sem mannkynið hefur skapað með vísindum, heimspeki og listum.
Húmanistar leggja áherslu á skynsemina
Gagnrýnin, upplýst hugsun og fræðilegar aðferðir eru bestu leiðirnar sem við höfum til að afla okkur áreiðanlegrar þekkingar um heiminn.
Húmanistar hvetja til gagnrýninnar hugsunar um allar hugmyndir og viðhorf
þar með talin sín eigin. Við leitumst við að finna bestu rök í hverju máli og erum tilbúin að skipta um skoðun þegar við reynumst hafa haft rangt fyrir okkur. Tjáningarfrelsi er grundvallarforsenda þess að það reyni á skoðanir í opinni umræðu.
Húmanistar telja að lýðræði, réttarríki og mannréttindi séu grundvallargildi byggð á rökhugsun
Við erum hluti af samfélagi, og erum ábyrg gagnvart öðru fólki og gagnvart umhverfi okkar, bæði nær og fjær. Okkur ber að tryggja að jörðin verði byggileg komandi kynslóðum.
Húmanisminn stuðlar að jafnrétti
Húmanistar virða skoðanafrelsi allra og rétt til að velja sér lífsskoðun. Ríkið á að vera veraldlegt og það á ekki að gera einni lífsskoðun hærra undir höfði en öðrum.
Þýð. Sigurður Hólm Gunnarsson og Mörður Árnason