Þemanámskeið: Íþróttir
Á þemanámskeiðum er lögð áhersla á skapandi aðferðafræði til að miðla námsefni borgaralegrar fermingarfræðslu og fermingarbörnin eru virkjuð í gegnum áhugasvið sín til að takast á við viðfangsefni námskeiðsins.
Á íþróttanámskeiðinu er námsefni fermingarfræðslunnar tengt markvisst við íþróttaiðkun þátttakenda hverju sinni og þeir hvattir til að beita efninu á raunveruleg dæmi úr eigin lífi. Gerðar eru fjölbreyttar æfingar sem reyna á skilning á hugtökum námsefnisins; alls kyns leikir leikir notaðir til miðlunar og kennslu, og börnin hvött til umræðu, samvinnu og gagnrýnnar hugsunar.
Námskeiðið er kennt á tveimur helgum, alls fjögur skipti, fjórar klukkustundir í senn og hentar öllum krökkum sem hafa áhuga á eða stunda íþróttir, af hvaða toga sem er.
"Er í lagi að svindla ef enginn sér til?"
"Þurfa öll að fá að vera með?"
"Er það gilt mark ef dómarinn sá boltann ekki fara inn í markið?"
Staðsetning
Íþróttahús Laugarnesskóla
Námskeiðstilhögun
Fjögur skipti yfir tvær helgar, fjórar klukkustundir í senn.
Námskeið 1: 17. - 18. janúar og 24. - 25. janúar
Klukkan 10:00 - 14:00.
Verð
40.000 kr.
Félagar í Siðmennt fá sérstök afsláttarkjör. Upplýsingar um þau má finna hér.