Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Húmanistaviðurkenning Siðmenntar 2010

Fimmtudaginn 4. nóvember var hin árlega Húmanistaviðurkenning Siðmenntar afhent og fór viðburðurinn fram á Hótel Loftleiðum. Handhafi viðurkenningarinnar árið 2010 er Hörður Torfason sem hefur sinnt mikilvægu og áratugalöngu starfi í þágu mannréttinda á Íslandi.

Í ár var úthlutað í þriðja sinn í flokki viðurkenningar sem hefur fengið heitið Fræðslu- og vísindaviðurkenning Siðmenntar. Árið 2008 hlaut Pétur Tyrfingsson sálfræðingur hana en 2009 hlaut Orri Harðarson hana. Eitt af megin umfjöllunarefnum félagsins er þekkingarfræðin og stuðningur við vísindalega þekkingarleit og fræðslu. Félagið veitir viðurkenningu þeim aðila eða samtökum sem hafa fært þjóðinni mikilvægt framlag í þessum efnum. Að þessu sinni er það Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur sem hlýtur viðurkenninguna.

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur frá árinu 2005 veitt árlega húmanistaviðurkenningu félagsins. Eftirtaldir aðilar hafa fengið viðurkenninguna hingað til: Samtökin 78, Ragnar Aðalsteinsson,Tatjana Latinovic, Rauði Kross Íslands og Alþjóðahús. Einstaklingar, félagasamtök og aðrir sem hafa lagt eitthvað mikilvægt af mörkum í anda húmanismans eiga möguleika á að hljóta hana. Eðli og markmið húmanismans birtast m.a. í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna, en í stefnuskrá Siðmenntar segir:

Siðmennt reynir að yfirstíga skiptingu manna í fjandsamlega hópa sem hver um sig byggir tilvist sína á ákveðinni sérstöðu, til dæmis kynþætti, trúarbrögðum, kyni, þjóðerni, stétt, tungumálum eða kynhneigð. Siðmennt vill fá fólk úr ólíkum hópum til að vinna saman að málefnum sem eru til góðs fyrir mannkyn allt.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til baka í yfirlit