Fara á efnissvæði
Til baka í yfirlit

Borgaraleg ferming 2006 – kynningarfundur

Kynningarfundur fyrir unglinga sem áhuga hafa á borgaralegri fermingu 2006 og aðstandendur þeirra verður haldinn laugardaginn 29. október 2005 kl. 11:00 – 12:00.
Fundarstaður verður auglýstur þegar nær dregur fundi og ljóst er hversu margir hyggjast mæta. Þeir sem hafa ekki nú þegar skráð sig í borgaralega fermingu en hafa áhuga á að mæta á kynningarfundinn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hope Knútsson. Símar 557-3734 eða 567-7752.


Á kynningarfundinum verður næsta námskeið Siðmenntar til undirbúnings Borgaralegri fermingu kynnt, gerð grein fyrir einstökum efnisþáttum og umsjónarmönnum þeirra. Skráningarblöðum verður dreift og fólk velur hvaða námskeið hentar því best.

Ennfremur verður greint frá tilhögun væntanlegrar athafnar næsta vor. Kosin verður nefnd foreldra og forráðamanna til að hafa umsjón með athöfninni. Það er æskilegt að 5-6 manns séu í nefndinni og best er að a.m.k.1-2 af þeim hafi haft börn í borgaralegri fermingu áður.

Mikilvægt er að flestir mæti sem ætla að taka þátt í Borgaralegri fermingu 2006, a.m.k. þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Landsbyggðarfólk sem kemst ekki á kynningarfundinn er vinsamlegast beðið um að hafa samband við Hope.

Merkið fundartíma inn á dagatalið!

Nánari upplýsingar veitir Hope Knútsson – símar 557-3734 eða 567-7752.

Til baka í yfirlit